Þjónustuskilmálar
Afgreiðsla vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun með fyrirvara um stærri útsölur og sértilboðsdaga. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef svo ólíklega vill til að varan sé uppseld áskilur Mathildahome sér rétt til að endurgreiða vöruna. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar- ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar.
Viðskiptaskilmáli
Mathildahome áskilur sér rétt til að hætta við pantanir til dæmis vegna rangra verðupplýsinga. Einnig áskilur Mathildahome sér réttinn að hætta bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Öll verð eru birt með virðisaukaskatti en sendingakostnaður er reiknaður þegar gengið er frá pöntun. Greiðslur með kreditkortum eru alfarið meðhöndlaðar af vefþjónum Rapyd, greiðslumiðlun Visa.
Trúnaður (öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög og ákvæði og skilmála þess ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Mathildahome á grundvelli þessara ákvæða og skilmála skal því vísað til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
Mathildahome
Veya ehf.
mathildahomeiceland@gmail.com
Jöfursbás 5, 112 Reykjavík
Kt: 500425-0830